Totus
Heim/Vörur/Öryggi/Dyrasímar
Öryggi

Dyrasímar

Dyrasímakerfi með mynd frá Fasttel fyrir heimili, fjölbýli og fyrirtæki.

Senda verkbeiðni
Dyrasímar

Fasttel — belgísk hönnun og snjallar aðgangslausnir

Fasttel er belgískur framleiðandi hágæða dyrasíma- og aðgangsstýrikerfa. Fyrirtækið var stofnað árið 1988 í Lokeren og leggur áherslu á vandaða hönnun, endingargóð efni og sveigjanlegar IP-lausnir fyrir heimili, fjölbýlishús og atvinnuhúsnæði. Vörulínan nær frá einföldum dyrasímum með einum hringitakka yfir í fullkomin mynddyrasímakerfi með skjá, snjallsímaforriti og fjölbreyttum aðgangsmöguleikum.

Fasttel býður mismunandi útfærslur eftir verkefnum. Wizard Entry er fáanlegur með 1–5 hringitökkum og valfrjálsu talnaborði, en Wizard Prestige býður stafrænan 4" HD skjá, mismunandi efnis- og litaval og lausnir fyrir allt að 999 íbúðir. Prestige er meðal annars fáanlegur í áli, bronsáferðum og sérvöldum RAL-lit.

Fasttel Commander FT30CC — 10" Android innistöð á borðstandi
Fasttel Wizard Entry FT600 útistöð með FasttelPhone appi og innistöð
Fasttel kerfismynd — úti- og innistöðvar tengdar um IP/PoE net

Vörur í boði

Sendu okkur línu

Við veitum ráðgjöf, hönnum lausnina og sjáum um uppsetningu og þjónustu. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

Birgjar okkar:
Fasttel

Aðrir undirflokkar í Öryggi