Fasttel
Commander FT30CC
10" Android innistöð fyrir Fasttel dyrasímakerfi. Stór snertiskjár, Wi-Fi 6 og Google Play gera kleift að nota skjáinn bæði fyrir dyrasímann og önnur samhæf Android-kerfi — t.d. myndavélar og hússtýringu.
Commander er hágæða innistöð fyrir þá sem vilja meira en hefðbundinn dyrasímaskjá. Með innbyggðu Android-stýrikerfi og Google Play er hægt að setja upp samhæf forrit fyrir meðal annars myndavélar, hússtýringu og önnur kerfi. Innistöðin getur sýnt IP-myndavélar og hentar því vel sem miðlæg stjórnstöð á heimili eða vinnustað. Commander er fáanlegur í svörtu eða hvítu áli og mismunandi bronsáferðum.
- 10" snertiskjár með 1280×800 upplausn
- Android stýrikerfi með innbyggðu Google Play
- Wi-Fi 6
- Getur sýnt IP-myndavélar frá öðrum framleiðendum
- Vefvafri og innbyggður SIP-miðlari
- Fjórir 8 ohm / 2 W hátalarar og tveir hljóðnemar
- Fáanleg í svörtu, hvítu og mismunandi bronsáferðum
- Veggfesting eða valfrjáls borðstandur
Tæknilegar upplýsingar
| Gerð | FT30CC Commander |
| Skjár | 10" snertiskjár |
| Upplausn | 1280 × 800 |
| Stýrikerfi | Android með Google Play |
| Wi-Fi | Wi-Fi 6 |
| Hátalarar | 4 × 8 ohm / 2 W |
| Hljóðnemar | 2 |
| Stærð | u.þ.b. H 180 × B 278 × D 14 mm |




