Totus
Brunavarnir

Reyklosun

Reyklosun og hitalosun (RWA/SHEV) — stýrieiningar og gluggamótorar sem hleypa reyk og hita út við bruna.

Senda verkbeiðni
Reyklosun

Reyklosun og hitalosun (RWA/SHEV)

Reyklosun snýst um að hleypa reyk og hita út úr byggingu við bruna. Það heldur flóttaleiðum greiðum, lækkar hita í rýminu og gefur slökkviliði betri yfirsýn þegar það kemur að. Á ensku kallast þetta SHEV — Smoke & Heat Exhaust Ventilation.

Kerfið er tvennt: stýrieining sem vaktar og tekur ákvörðun, og mótorar sem opna glugga, lúgur eða reyklosunarop. Hjá Totus koma báðir hlutar frá Nekos á Ítalíu. Sama kerfið nýtist líka í daglega náttúrulega loftræstingu, svo búnaðurinn stendur ekki ónotaður milli brunaæfinga.

Gluggamótor heldur opnanlegu fagi opnu — reyklosun í háhýsi
Reyklosunarmótorar frá Nekos í hvítu, silfri og svörtu
Spindilmótor fyrir reyklosun frá Nekos
SHEV stýritafla frá Nekos — opin, með varaaflgjafa og stýribúnaði

SHEV Stýrieiningar

Hjarta kerfisins er nett SHEV-3 (3 A úttak) og/eða SHEV-6 (6 A úttak) stjórntafla, þróuð í samræmi við staðal EN 12101, hluta 9 og 10.

  • Taflan inniheldur bæði aðal- og varaaflgjafa, auk allrar stýritækni sem þarf fyrir virkni 24V DC mótora sem tengdir eru kerfinu. Stýrieiningin virkjar mótorana bæði fyrir daglega loftræstingu og við eldsvoða.
  • Stýrieiningarnar bjóða upp á sértækar loftræstiaðgerðir (takmörkuð loftræsting, „deadman“-rofi og sjálfvirk loftræsting) sem notandi getur forritað eftir þörfum.
  • Við rafmagnsleysi tryggir neyðaraflgjafi að reyk- og hitaútsogskerfið haldist í rekstri í að lágmarki 72 klukkustundir.

Hvenær er reyklosunar krafist?

Kröfur um reyklosun koma úr byggingarreglugerð og brunahönnun hvers verkefnis. Þær eiga oftast við þar sem fólk er margt eða flóttaleiðir langar — í stigahúsum og lyftuhúsum, opnum anddyrum og verslunarrýmum, iðnaðar- og lagerhúsnæði, og bílakjöllurum.

Reyklosun og brunatjöld vinna saman

Brunatjöld hólfa rými og hefta útbreiðslu elds og reyks; reyklosun losar reykinn sem safnast fyrir. Í stærri byggingum eru þetta tvær hliðar á sömu brunahönnun og eru oftast leyst samhliða.

Sendu okkur línu

Við veitum ráðgjöf, hönnum lausnina og sjáum um uppsetningu og þjónustu. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

Birgjar okkar:
Nekos

Aðrir undirflokkar í Brunavarnir