Totus
Heim/Vörur/Öryggi/Öryggiskerfi
Öryggi

Öryggiskerfi

Hjá Totus bjóðum við upp á alla línuna af öryggiskerfum frá Satel, einum fremsta framleiðanda viðvörunar- og öryggiskerfa í Evrópu.

Senda verkbeiðni
Öryggiskerfi

SATEL

Hjá Totus bjóðum við upp á alla línuna af öryggiskerfum frá Satel, einum fremsta framleiðanda viðvörunar- og öryggiskerfa í Evrópu. Satel hefur í yfir 35 ár þróað og framleitt rafeindatæki fyrir öryggiskerfi í Póllandi og vörurnar eru nú notaðar á yfir 90 mörkuðum um allan heim.

Hvort sem þú ert að leita að einfaldri viðvörunarlausn fyrir heimilið eða fullkomnu öryggiskerfi fyrir stórt fyrirtæki með aðgangsstýringu og heimastjórnun, þá bjóðum við Satel lausn sem hentar þínum þörfum — og sjáum um uppsetningu, þjónustu og viðhald.

Af hverju Satel?

Gæði og áreiðanleiki

Allar Satel vörur eru hannaðar og framleiddar í eigin verksmiðju fyrirtækisins í Póllandi. Hver einasta framleidda eining er prófuð fyrir afhendingu — ekki bara stikkprufur, heldur 100% af öllum vörum. Framleiðslan er ISO 9001:2015 vottuð.

Satel smáforrit í síma

Sveigjanlegar lausnir

Satel býður upp á fjórar meginvörulínur af stjórnstöðvum — frá einföldum þráðlausum lausnum fyrir lítil rými upp í háþróuð kerfi fyrir stórar byggingar með mörgum deildum og hundruðum skynjara.

Snjallt og tengt

Öll kerfi er hægt að stjórna í gegnum snjallsímaforrit (INTEGRA Control, PERFECTA Control) — þú getur sett kerfið á og af, fengið tilkynningar um atburði og fylgst með IP myndavélum, óháð því hvar í heiminum þú ert.

Satel öryggiskerfi fyrir heimili

Margt í einu kerfi

Satel kerfi eru ekki bara viðvörunarkerfi. Þau geta einnig séð um aðgangsstýringu, eldvarnir, flóðskynjun, gasskynjun og heimastjórnun (lýsing, hiti, gluggatjöld, hlið o.fl.).

INTEGRA eða PERFECTA?

  • INTEGRA: fyrir meiri stækkanleika, mörg öryggissvæði, aðgangsstýringu, sjálfvirkni og krefjandi atvinnuverkefni.
  • PERFECTA: fyrir heimili og lítil til meðalstór fyrirtæki þar sem einföld notkun, LTE/IP samskipti og gott verð/afköst skipta mestu.
  • PERFECTA 64 M / IP 64 M: brúar bilið milli einfaldari PERFECTA kerfa og stærri INTEGRA lausna með allt að 64 svæðum og ABAX 2 stuðningi.
Vörulína SATEL INTEGRA

SATEL INTEGRA

SATEL INTEGRA er háþróað og mjög stækkanlegt öryggiskerfi sem getur sameinað innbrotsvörn, aðgangsstýringu og hússtýringu. Kerfið hentar bæði stærri heimilum og atvinnuhúsnæði og Plus-gerðirnar bjóða upp á EN 50131 Grade 3 fyrir krefjandi öryggisverkefni.

  • Allt að 256 svæði
  • Mörg sjálfstæð öryggissvæði
  • Snertiskjáir og MIFARE aðgangur
  • ABAX 2 þráðlausir skynjarar með ACU-220/280
  • Aðgangsstýring og sjálfvirkni
  • Fjartenging með viðeigandi samskiptaeiningum

Lausnir fyrir heimilið

Fyrir einbýli, raðhús, parhús, íbúðir og sumarhús

Öryggi fjölskyldunnar og heimilisins er ómetanlegt. Satel býður upp á vörulínu sem henta sérstaklega vel fyrir heimili á Íslandi — bæði fyrir nýbyggingar og þegar setja þarf öryggiskerfi upp í eldri hús.

Satel skynjarar

PERFECTA — vinsælasta heimilislausnin

Satel PERFECTA — stjórnstöð fyrir heimili með snjallstýringu

PERFECTA er sveigjanleg stjórnstöð hönnuð sérstaklega fyrir íbúðarhús, sumarbústaði og litlar skrifstofur. Hún er einföld í notkun en býður upp á öflugar öryggisaðgerðir og heimastjórnun.

Hentar fullkomlega þegar þú:

  • Átt hús eða íbúð og vilt bæði innbrotsvörn og heimastjórnun
  • Vilt fá snemmviðvörun um eldsvoða eða vatnsleka
  • Vilt kerfi sem er einfalt að setja upp og stækka síðar
  • Vilt stjórna kerfinu úr snjallsímanum hvar sem er í heiminum
  • Átt sumarbústað og vilt að hann sé öruggur allt árið

Helstu kostir PERFECTA:

  • Allt að 32 skynjarasvæði (PERFECTA 32-WRL)
  • Fáanlegt sem þráðlaust, með snúru, eða blandað kerfi
  • Innbyggð GSM-eining fyrir SMS tilkynningar og símtöl
  • Snerti-stjórnborð með stórum takka og macro-skipunum
  • PERFECTA Control smáforrit fyrir iOS og Android
  • Hægt að tengja IP myndavélar og skoða beinstreymi
  • Heimastjórnun: lýsing, hiti, loftkæling, vökvunarkerfi, hlið
Birgjar okkar:
BCSFasttelSatel

Aðrir undirflokkar í Öryggi