
Myndavélakerfi frá BCS
Totus flytur inn og býður upp á öryggismyndavélar og öryggisbúnað frá BCS. BCS er pólskt fyrirtæki, stofnað árið 2008, sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á myndavélakerfum og rafrænum öryggislausnum (CCTV). Fyrirtækið er í dag eitt af leiðandi vörumerkjum í Evrópu á sviði myndavélaeftirlits og býður upp á fjölbreyttar lausnir fyrir heimili, fyrirtæki og iðnað.
Örugg myndavélakerfi fyrir fyrirtæki og heimili
- Háskerpu myndefni – hágæða mynd og áreiðanleiki
- Snjallar greiningar – AI greining, hreyfiskynjun o.fl.
- Hentusemi – auðvelt í gegnum tölvu eða snjallsíma
- Skýjalausn – eigið stjórnkerfi og skýjalausn til fjarstýringar
Helstu vörur frá BCS
BCS býður upp á fjölbreytt úrval IP öryggismyndavéla með allt að 4K upplausn. Öryggismyndavélarnar eru fáanlegar í mismunandi útfærslum:
- Dome öryggismyndavélar fyrir skrifstofur og verslanir
- Bullet öryggismyndavélar fyrir utandyra eftirlit
- PTZ öryggismyndavélar með aðdrætti og hreyfingu
- Fisheye öryggismyndavélar fyrir vítt sjónsvið
- Samhæfanlegt við aðgangsstýringu og sjálfvirkni
- Flestar gerðir eru með IR nætursjón, IP67 vatnsþol, snjallar greiningar og koma frá 2Mpx til 12Mpx
Myndavélaupptökutæki (NVR)
BCS framleiðir einnig NVR upptökutæki sem stjórna og vista myndbandsupptökur frá myndavélum. Kerfin geta sinnt live view, upptöku, endurspilun og fjarstýringu á sama tíma.
- Styðja allt að 4K eða meira í upplausn
- Geta tekið upp frá mörgum myndavélum samtímis
- Fjarstýring í gegnum app eða vefviðmót
- Stór geymslurými fyrir upptökur
Stjórnunarkerfi og hugbúnaður
BCS býður einnig upp á stjórnunarkerfi fyrir öryggismyndavélar svo að þú getur stjórnað þessu hvar sem er í heiminum.
- BCS Manager VMS – hugbúnaður til að stjórna kerfum
- App – snjallsímaforrit fyrir iOS og Android
- Skýjalausn fyrir fjarstýringu
- Greiningartól fyrir hreyfingu og atburði
Af hverju að velja BCS?
- Traust evrópskt vörumerki í öryggiskerfum
- Mjög góð verð og gæði
- Breitt úrval öryggismyndavéla og upptökutækja
- Auðvelt að samþætta við önnur öryggiskerfi
Svæðisvörn og eftirlit fyrir stærri svæði
Totus býður upp á öflugar lausnir fyrir svæðisvörn, iðnaðarsvæði og mikilvæga innviði. Með háþróuðum hitamyndavélum og sjálfvirkum varðturnum er hægt að greina óviðkomandi aðila áður en þeir nálgast byggingar eða svæði.
- Iðnaðarsvæði
- Hafnir og flugvelli
- Geymslusvæði og lagera
- Byggingarsvæði
- Orkuver og gagnaver
Hitamyndavélar
Hitamyndavélar greina hitamun í umhverfinu og geta því séð fólk og farartæki jafnvel í myrkri, þoku, rigningu, snjó, reyk eða ryki.
- Greina innbrot áður en það gerist
- Virka allan sólarhringinn
- Henta fyrir mjög stór svæði
- Geta tengst við viðvörunarkerfi
Sjálfvirkir varðturnar
Varðturnar sameina myndavélar, hitamyndavélar, lýsingu, hátalara og fjarskiptabúnað. Þeir eru oft knúnir með sólarorku og rafhlöðum og henta vel fyrir tímabundið eftirlit. Varðturnar geta tengst miðlægu stjórnkerfi þannig að öryggisverðir eða stjórnendur sjá allt í rauntíma.
- Byggingarsvæði – verndaðu verðmæt tæki og efni gegn þjófnaði og óviðkomandi aðgangi
- Stór bílastæði – aukið öryggi gesta og starfsfólks með fullri yfirsýn, dag og nótt
- Iðnaðarsvæði – snemmgreining á hreyfingu og hættum áður en vandamál skapast
- Hafnarsvæði – eftirlit með víðfeðmum svæðum í myrkri, þoku og slæmu veðri
Samþætting við aðrar lausnir frá Totus
Einn stærsti kostur lausnanna er að þær geta tengst öðrum kerfum frá Totus. Þannig fær viðskiptavinurinn eitt heildarkerfi fyrir öryggi byggingar og svæðis.
- BCS öryggismyndavélar – eftirlit og upptökur
- Roger aðgangsstýringar – hurðir og hlið
- FAAC bómur og hlið – stjórnun bílaumferðar
- Coopers Fire brunatjöld – brunavarnir
Sendu okkur línu
Við veitum ráðgjöf, hönnum lausnina og sjáum um uppsetningu og þjónustu. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.
Fasttel