Totus
Aðgengi og hurðir

Gluggamótorar

Mótorar fyrir opnanleg fög, reyklosun og loftræstingu.

Senda verkbeiðni
Gluggamótorar

Gluggamótorar og reyklosun frá Nekos

Totus býður upp á rafdrifna gluggamótora og reyklosunarlausnir frá Nekos á Ítalíu — leiðandi framleiðanda á sviði sjálfvirkni fyrir opnanleg fög. Lausnirnar henta fyrir daglega náttúrulega loftræstingu jafnt sem reyklosun (RWA/SHEV) í atvinnu- og íbúðarhúsnæði.

Nekos framleiðir bæði keðjumótora og spindilmótora fyrir fjölbreyttar gluggagerðir, ásamt stýringum og aukabúnaði sem gera kerfin snjöll og örugg.

Nekos er þekkt fyrir

  • 100% ítalska hönnun og framleiðslu
  • Áreiðanlega og hljóðláta mótora
  • Náttúrulega loftræstingu og reyklosun (RWA/SHEV)
  • Samþættingu við snjallheimili og byggingastjórnkerfi (BMS/KNX)

Stýringar fyrir reyklosun

SHEV-3 og SHEV-6 stýristöðvar (3A og 6A) stjórna reyklosunarmótorunum samkvæmt EN 12101 (hluta 9 og 10). Þær eru með aðalafli og allt að 72 klst varaafli, neyðarrofa og forritanlegum loftræstistillingum.

Aukabúnaður

  • Veggrofar og fjarstýringar
  • Regn- og vindskynjarar
  • Tímastýringar
  • Samþætting við BMS og KNX

Sendu okkur línu

Við veitum ráðgjöf, hönnum lausnina og sjáum um uppsetningu og þjónustu. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

Birgjar okkar:
FAACMotorlineFlexidoorNekosSimon-protec