
M200 — stjórnaðu hliðum og hurðum hvar sem er
M200 frá Motorline er fjarskiptabúnaður sem gerir þér kleift að stjórna tækjum hvar sem er í heiminum í gegnum skýjatengingu — hurðum, hliðum og bómuhliðum. Búnaðurinn notast við 4G LTE net og Bluetooth til að veita aðgang.
Hægt er að stjórna tækjum með símtölum, SMS, Bluetooth eða í gegnum Motorline Portal og app. M200 býður einnig upp á stjórnun á öðrum búnaði — hægt er að kveikja og slökkva á búnaði eins og viðvörunum, dælum og heitum pottum, og tengja aðgangsstýringar með Wiegand-samskiptum.




Helstu eiginleikar
- Mikill notendafjöldi — styður allt að 1000 notendur
- Bluetooth samskipti — virka í allt að 30 metra fjarlægð á opnu svæði
- Tvær útgangstengingar til að stjórna hurðum eða sjálfvirknibúnaði
- Stillingar gerðar í gegnum Bluetooth, SMS eða Motorline Portal
- Aðgangsstýring — daglegar venjur og undantekningar eins og frídagar
- Gestastjórnun — tímabundinn aðgangur með QR-kóða eða aðgangskóða

Motorline Portal
Motorline Portal er netvettvangur sem er hannaður til að stýra Motorline búnaði á einfaldan og þægilegan hátt. Notendur þurfa einungis að ná sér í Motorline MCONTROL appið.
- Fjarstýring — stjórnaðu tækjum eins og hurðum og hliðum hvaðan sem er í heiminum
- Notendastjórnun — bættu við, breyttu eða fjarlægðu notendur og stilltu aðgang þeirra
- Tímaskipulag — vikulegar tímaáætlanir, undantekningadagar og aðgangur á ákveðnum tímum dags
- Tilkynningar — viðvaranir um óviðkomandi aðgangstilraunir eða breytingar á stöðu tækja
- Eftirlit með búnaði — sjáðu hvort hlið er opið eða lokað og staðsetningu á korti

Hentar meðal annars fyrir
- Sumarhúsasvæði
- Vinnusvæði
- Bílastæði
- Skrifstofuhúsnæði
- Iðnaðarhúsnæði
- Airbnb
Sendu okkur línu
Við veitum ráðgjöf, hönnum lausnina og sjáum um uppsetningu og þjónustu. Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.
